18.10.2009 | 02:40
Þetta höfðum við upp úr leyndinni.
Maður veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta.
Nú finnst mér ég vera farinn að geta ímyndað mér hvernig það hlýtur að vera að spila á aðra fiðlu í C óperhúsi í einhverju krummaskuði í Þýskalandi. Hljómsveitin alltaf fölsk, stjórnendurnir amatörar upp til hópa sem fást fyrir slikk og einsöngvararnir uppgjafa fyllibyttur sem náðu aldrei að koma ferli sínum í gang. Það er sama hvað gert er, það bara næst ekki upp standard. Allt sem gert er hljómar bara falskt.
Er það alveg vonlaust mál að ríkisstjórnin taki sig saman um að verja hagsmuni okkar?
Icesave-fyrirvörum breytt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.9.2009 | 12:39
Heiðarlegt og drengilegt hjá Ögmundi.
Sem betur fer eigum við enn stjórnmálamenn á Alþingi sem eru ekki hræddir við að fylgja sannfæringu sinni þótt það sé óþægilegt fyrir þá tímabundið. Ég tel öruggt að þjóðin muni virða þetta við Ögmund.
Ég læt hér fylgja grein mína um Icesave í MBL á Sunnudaginn.
Hvers konar þjóð erum við eiginlega?Um þessar mundir eru margir að ýta undir það sjónarmið að nú verði bara að klára Icesave málið. Þjóðin sé orðin svo þreytt á málinu og kominn tími til að horfa fram á veginn. Þeir sem taka undir þennan málflutning eru þá væntanlega að tala fyrir því að Íslendingar gangi möglunarlaust að ýtrustu kröfum Breta og Hollendinga. Kröfum sem þeir fylgja staðfastlega eftir með ofbeldisfullum aðgerðum í garð þjóðar okkar.
Íslendingar hafa gengið að öllum kröfum Breta og Hollendinga.
Fólk ætti frekar að spyrja sig hvernig við misstum sjónar á því að þrátt fyrir fyrirvarana á ríkisábyrgðinni höfum við í raun gengist við illa rökstuddum kröfum andstæðinga okkar að fullu. Þrátt fyrir fyrirvarana þá mun íslenskur almenningur nefnilega greiða tap evrópskra sparifjáreigenda sem lögðu fé sitt inn á hávaxta innlánsreikninga banka í einkaeigu.
Þrátt fyrir fyrirvarana á Icesave skuldabréfinu er algerlega látið hjá líða að gera þá sjálfsögðu kröfu til Breta og Hollendinga að þeir bæti Íslendingum þann skaða sem hlaust af yfirtöku þeirra á eigum íslendinga.
Þrátt fyrir fyrirvarana gera Íslendingar engar kröfur um bætur vegna ummæla Gordon Browns og Alistair Darlings um Íslendinga í alþjóðlegum fjölmiðlum. Ekki verður heldur vart við kröfu um að tillit verði tekið til beitingar hryðjuverkalaga gegn íslenskri þjóð.
Síðast en ekki síst sættum við Íslendingar okkur vel við það að Bretar og Hollendingar beiti fyrir sig Alþjóðlega gjaldeyrissjóðnum til að neyða okkur til þess að gangast við lagalega hæpnum kröfum þeirra.
Það eina sem Íslendingar hafa auðmjúklega beðið Breta og Hollendinga um að gefa eftir er það að fá að greiða þessar kröfur með þeim hætti að efnahagskerfi þjóðarinnar leggist ekki í rúst og að greiðslurnar taki einhverntíma enda. En nei það gengur ekki. Þetta geta Bretar og Hollendingar ekki sætt sig við.
Ábyrg hegðun gagnvart einelti?Þeir sem tala um að Íslendingar eigi nú að sýna ábyrga hegðun í samfélagi þjóðanna, gangvart þessum yfirgangi Breta og Hollendinga, hljóma orðið eins og barn sem verður fyrir einelti en reynir að réttlæta og breiða yfir gerðir kvalara síns.
Við þurfum að geta tekið þátt í samfélagi þjóðanna, segja sumir. Sú afstaða þýðir þá væntanlega að þátttaka í samfélagi þjóðanna feli í sér að ekki megi vísa í lög og reglur og fá úrskurð hlutlausra dómstóla um ágreiningsefni. Í slíku samfélagi eigi almennt að ganga, án mótmæla, að kröfum stærri og voldugra þjóða. Eða alla vega þjóða sem geta og viljafylgja málstað sínum eftir með ofbeldisfullum aðgerðum?
Hver er kjarninn í málflutningi Breta og Hollendinga?Kjarninn í málflutningi mótherja okkar í Icesave deilunni virðist vera sá að íslenskum stjórnvöldum beri að taka á sig allar útistandandi skuldbindingar tryggingasjóðs innstæðueigenda og fjárfesta eða m.ö.o. að til staðar sé ríkisábyrgð á tryggingasjóðnum. Þetta er alger firra og stenst engan veginn grundvallarreglu Evrópusambandsins um jafnræði á markaði . Ef gengið er út frá því að bankar starfi í skjóli ríkisábyrgðar á innstæðutryggingum leiðir það til þess að bankar stjórra Evrópuþjóða geta boðið upp á margfalt öruggari innstæðutryggingar en bankar minni landa. Slíkt myndi skekkja verulega samkeppni banka á grundvelli uppruna. Í stað þess að horfast í augu við þennan augljósa galla og laga hann, t.d. með því að samtengja innistæðutryggingakerfi Evrópu eða taka sameiginlega á vanda okkar, þá hafa Evrópuþjóðir ákveðið að fórna íslenskum skattgreiðendum. Gera ófarir þeirra að víti öðrum til varnaðar.
Hvernig útskýrum við þetta fyrir börnum okkar?Það undarlegasta við þetta Icesave mál er að ríkisstjórn okkar hefur engan veginn veitt eðlilega mótspyrnu gagnvart þessari aðför að hagsmunum Íslendinga. Þvert á móti virðist hún leggja meiri áherslu á að flytja málstað mótherja okkar heldur en málstað íslensks almennings.
Það að halda uppi málsvörn þjóðarinnar hefur nánast eingöngu hvílt á ólaunuðum áhugamönnum um þjóðarhag. Hvernig eigum við eiginlega að við útskýra þennan aumingjahátt stjórnvalda fyrir börnum okkar í framtíðinni? Við bara spyrjum? Að hver fjölskylda eigi að greiða Bretum og Hollendingum 600.000 krónur á hverju ári í átta ár (2016 til 2024) í erlendum gjaldeyri, einungis vegna þess að við höfðum ekki dug né kjark í okkur til að standa í fæturna gegn kúgun breskra og hollenskra stjórnvalda. Erum við Íslendingar nú í byrjun 21. aldar virkilega orðnir svo illa farnir af góðæri síðustu ára að við höfum ekki lengur nennu eða getu til að verja hagsmuni og fullveldi þjóðar okkar gagnvart kröfum sem byggja hvorki á traustum lagalegum né siðferðislegum grunni?
Erum við orðin algerlega huglaus þjóð?
Ólafur Elíasson, tónlistarmaður.
Ragnar F. Ólafsson, félagssálfræðingur.
Ögmundur segir af sér | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Ólafur Elíasson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar